Svalir - eins og á húsum |
Wednesday, February 26, 2003 Jibbí, þessari skóla viku er nú lokið vegna svokallaðar menningarferðar sem farin verður til sunnlands í fyrramálið. Mér lýst bara ágætlega á þessa ferð, þó jeg efist um að jeg verði mjög menningarlegur. Utan við þessa Babýlóníu herleiðingu gengur allt einnig vel. Það er erfitt að skrifa um eitthvað þegar maður hatar svo fáa hluti. Reyndar er einn hlutur sem fer í taugarnar á mér... Helvítis maurarnir sem sjá um að halda salernum og fleiri stöðum í skóla vorum hreinum. Það hefur nú þrisvar komið fyrir að einn þeirra, meira segja í öll skiptin sam einstaklingurinn, hafi ætt inná salernið meðan jeg er að skvetta úr skinnsoknum. Og ekki það að þessi kvenkyns maur biðjist afsökunar eða eithtvað í þeim dúr, nei nei, hún heldur bara áfram að þrífa og hunsar tilvist manns. Í eitt skiptið var jeg orðinn helvíti hræddur um að hún væri að fara að skella sér í að þrífa þvagskálina sem jeg var að nota þá stundina. Hver heil- eða hálfvita maður ætti að sjá að þetta er syndsamlegt og krefst byltingar. Fínt það.. Jeg hef ekki tekið þátt í byltingu lengi. Geri mig samt reiðubúinn í að koma með kynþáttahreinsunarbyltingu hérlendis, og hef eignast umtalsvert fylgi. Nei þar laug jeg aftur, vill draga fyrri orð mí til baka og setja fram þá fullyrðingu að jeg er með engu móti(allavega ekki meðvitað) rasisti, og er jeg meira að segja litblindur, þannig jeg tek ekki einu sinni eftir litarhafti þeirra sem deila með mér jörðinni. En... þá bara bless í biliposted by stefan at 7:31:00 PM | Saturday, February 22, 2003 Jeg er hræddur við lítil ljóshærð börn. En það ætti ekki að skipta máli þar sem eftir nokkur ár verður holdafar ungra barna orðið það viðurstyggilegt að maður fyllist frekar viðbjóði heldur en hræðslu. Þetta er virkilega orðið svolítið vandamál. Einnig held jeg að þessi kynslóð sem er á leiðinni sé alltof ókurteis. Allavega er það mín skoðun. Þetta er líklega sú kynslóð sem á eftir að stefna mannkyninu í glötun. Jeg átti í miklum samræðum um þetta við Jón Skúla Byltingarmann, gamla manninn sem jeg hitti alltaf í strætó. Þetta er mjög líklega mjög einmanna maður þar sem þetta hefur gengið svona um allnokkurt skeið. Jeg hitti þennan mann í strætó sirka 3 sinnum í viku, og alltaf birtir yfir honum þegar hann sér mig, því þá hefur hann loksins einhvern til að tala við. En allavega... Á döfinni er ferð til höfuðborgarinnar um næstu helgi, með mínum yndislegu samnemendun í Menntaskóla Akureyrar. Það verður líklega ágætis skemmtun, þar sem jeg get þá verslað mér vinyla og fleira. Í gærkveldi var farið í pool á Ali's, þar sem jeg, birdy, úlfur og gunni spiluðum í liðakeppni. Það fór ágætlega.. Bless...posted by stefan at 5:43:00 PM | Monday, February 17, 2003 Hef skrifað tiltölulega lítið hérna upp á síðkastið. Það á sér skýringu eins og flest annað í þessu heimi, réttar eða rangar. Annríkið hefur verið mikið upp á síðustu daga og hef jeg staðið sjálfan mig að því að eyða æ minni tíma fyrir framan tölvuskjáinn. Býst við því að það sé góður hlutur frekar en slæmur. Sem dæmi um annríki má nefna mpjésjéinn sem tekur af mér mest allan frítíma minn. Jeg held að það sé einnig góður hlutur, svo það virðist að allt gangi mér í haginn þessa dagana. En.. Jeg sá eina slappa ræmu á sunnudaginn var. Þar sem jeg er á móti heimskulegum verkföllum, og læt það ekki skipta mig máli hvort jeg eyði 800kr eða 750 kr í bíó, þá gerðist jeg verkfallsbrjótur og skundaði á leið í bíó. Þar sem dramatísku fjölskyldumyndirnar og barnamyndirnar(ekki það að jeg sé að neita því alfarið að jeg falli undir hóp barna) voru ekki nægilega aðlaðandi átti jeg um tvo kosti að velja. Það var eitthvað smhict dæmi með Jack Nicholson þar sem hann pósar svo fallega framan á posterinu með ský á hausnum. Jeg keypti mér fyrst miða á hana, en komst svo að því að jeg var ekki í skapi að sjá einhverja sýrumynd. Því fór jeg í staðinn á I-Spy með eddie murphy og gaurnum með skrýtna nefið. Það hefði jeg betur látið vera. Þetta var ein leiðinlegasta njósnamynd sem jeg hef séð og þá er sko mikið sagt. Ekki það að jeg sé að segja að jeg sé einhver dómari og kviðdómandi í þessu máli enm jeg hef vissulega rétt á mínum skoðunum. Og jeg held að þessi fullyrðing mín sé meira en skoðun. Þeir hefðu eins getað látið mann borga áttahundruð kall á myndina, eytt fimm mínótum í að sýna kellinguna og njósnatækin, einn eddie brandara og segja svo: "Heyrðu þar sem við gerum þessa bíómynd einungis fyrir peningana, þá nennum við ekki að taka meira upp". Eddie murphy lék nákvæmlega sama persónuleika og hann gerir í flestum bíómyndum, nema í þetta skiptið var hann boxari. Nenni varla lengur að eyða meiri tíma í að rakka niður enn einn skandalinn í kvikmyndasögu þannig jeg held bara í háttinn, því í svefni mínum get jeg örugglega spunnið upp þónokkuð betri söguþráð en þann sem var í þessari kvikmynd.posted by stefan at 11:52:00 PM | Sunday, February 16, 2003 Jæja.. Liðinn langur tími frá því jeg ritaði vangaveltur mínar hingað inn. Fátt að segja frá, skrifa meira seinna í dag..posted by stefan at 2:11:00 PM | Sunday, February 09, 2003 Kannski.. En allavega þá fór jeg í kvikmyndahús í gær.. Sú mynd hafði þónokkuð mikið skemmtanagildi umfram væntingar. Þetta mun vera myndin catch me if you can. Bara hreint ágætis ræma.. Svo endaði kvöldið á því að meðbloggari minn ældi af of mikilli áfengisnotkun í bíl annars félaga míns og var mikil skemmtun í því. Draugasögurnar láta reyna á sig. En allavega er jeg eithtvað dofinn í dag þannig að ef jeg myndi finna það í mér að skrifa meira þá myndi jeg líklega sjá eftir því. Eigum við ekki að segja þetta gott í bili?posted by stefan at 8:08:00 PM | Saturday, February 08, 2003 Enn ömmur vika senn á enda. Jeg er búin að afreka frekar lítið þessa vikuna.. Eða jú, reyndar flutti jeg mpcinn, vladimir og trillurnar tvær niður í íbúðina niðri. Hún er laus í mánuð vegna leigenda skiptinga. Þar er hið víðfræga kitchen of hiphop, vegna þess að eini bekkurinn í þessari íbúð er í eldhúsinu, og þess vegna neyddust við til að setja upp græjurnar þar... Í gær átti jeg nokkrar góðar stundir þar, en eyddi svo restinni af kvöldinu með Miguell og Kalla. Það var alveg ágætt svosem.. Shit hvað jeg nenni ekki að skrifa fleiri merkingarlaus orð inná þessa síðu sem enginn les hvort eð er. Og ef þá einhverjir virkilega lesa þetta þá verð jeg að draga þá ályktun að þeir séu hálfvitar.. En erum við það ekki öll?posted by stefan at 6:41:00 PM | Thursday, February 06, 2003 Hmm... Góðan dag...posted by stefan at 8:47:00 PM | Wednesday, February 05, 2003 Andskotinn!!!!!!posted by stefan at 2:49:00 PM | Tuesday, February 04, 2003 Er það ekki nokkurnvegin rétt hjá mér að þú ert með ömurlegan tónlistarsmekk, og bara yfir allt ömurleg lífvera ef þú hefur eitthvað eitt lag á repeat þegar þú ert a sofna eða chilla? Þið, lesendur góðir ef þá nokkrir, megið vel sleppa því að svara þessari spurningu á annan hátt en inní ykkar gjörspilltu og áhrifagjörnu heilabúum. Djöfulsins skjárinn minn er svo bjartur að mér finnst eins og augntóftirnar í mér hafi breyst í steikarpönnur, og getið hvað, augun mín eru eggin. Vegna þessarar staðreyndar hef jeg ákveðið að skrifa ei meir...posted by stefan at 11:10:00 PM | Monday, February 03, 2003 Jibbí! Jeg hef ákveðið að afneita þessum heimi sem tilverustað mínum. Ekki það að jeg sé að deyja eða eithtvað svipað. Jeg hef einfaldlega fengið ógeð af mannfólki. Þar á meðal sjálfum mér býst jeg við. En allavega.. Það er svo mikið af ógeði í þessum heimi. Jeg er ekki viss um að jeg sætti mig við að klára skóla, ná mér í einhvern nógu vitgrannan kvennmann sem þolir mig, eignast íbúð og börn, og að lokum deyja á einhverju andskotans sjúkrahúsi eða elliheimili án þess að hafa gert neitt af viti. Reyndar er jeg þónokkuð viss um að þetta myndi aldrei ganga upp þar sem tortíming jarðar myndi líklega eiga einhevrn þátt í að breyta atburðarásinni.posted by stefan at 1:11:00 PM | Sunday, February 02, 2003 Jeg er andlega máttvana og nenni ekki að skrifa.. En það er skóli á morgun!posted by stefan at 1:52:00 PM | |